Skip to Content

Flatarmál hrings með geisla $r$ er gefið með jöfnunni \[F=\pi r^2\] og ummál hrings með geisla $r$ er gefið með jöfnunni \[U=2\pi r.\] Hér er $\pi$ talan .

Til að leiða út jöfnurnar fyrir flatarmáli og ummáli hrings, þá má búta hringinn niður og raða bútunum á nýjan leik eins og sýnt er á myndinni hér fyrir neðan. Eftir því sem bútarnir eru fleiri líkist flatarmyndin sem fæst æ meir rétthyrningi sem er samsettur af fjölmörgum hringgeirum sem líkjast jafnarma þríhyrningum. Hliðarlengdir rétthyrningsins stefna á tölurnar $r$ og $\pi r$ þegar bútunum fjölgar.