Uppsetning á vafra
Það þarf ekki að setja upp neinn hugbúnað til að skoða hugtakasafnið.
Þó er hægt að gera tvennt til að bæta útlitið á safninu:
Vera með nýustu útgáfu af nútímalegum vafra á borð við Chrome, Firefox, Internet Explorer, Opera eða Safari.
Setja upp STIX leturgerðina fyrir stærðfræði. Hún inniheldur fjölmörg stærðfræðitákn og með þeim mun stærðfræðin á vefnum líta betur út.
Að setja upp STIX leturgerðna fyrir stærðfræði
Linux notendur
Þægilegast er að leita að pakka með STIX leturgerðunum. Á Debian kerfum eins og Ubuntu heitir hann otf-sitx og á Redhat kerfum stix-fonts.
Einnig má setja leturgerðirnar handvirkt upp. Þá þarf fyrst að sækja leturgerðirnar. Næst er skráin afþjöppuð og þá fást nokkrar möppur, ein þeirra heitir fonts. Loks þarf að afrita skrárnar úr fonts möppunni á viðeigandi stað:
Þeir sem vilja setja leturgerðirnar upp fyrir einn notanda afrita skrárnar úr
fontsmöppunni í~/.fonts/möppuna.Þeir sem vilja setja leturgerðirnar upp fyrir alla notendur á vélinni geta t.d. afritað skrárnar úr
fontsmöppunni í möppu sem heitir/usr/share/fonts/opentype/stix.
Mac OS X notendur
Fyrst þarf að sækja leturgerðirnar. Næst er skráin afþjöppuð og þá fást nokkrar möppur, ein þeirra heitir fonts. Loks þarf að afrita skrárnar úr fonts möppunni á viðeigandi stað:
Þeir sem vilja setja leturgerðirnar upp fyrir einn notanda afrita skrárnar úr
fontsmöppunni í~/Library/Fontsmöppuna.Þeir sem vilja setja leturgerðirnar upp fyrir alla notendur á vélinni geta t.d. afritað skrárnar úr
fontsmöppunni í möppu sem heitir/usr/share/fonts/opentype/stix. ATH!
Windows notendur
Til að setja leturgerðirnar upp má taka eftirfarandi skref:
Afþjappa skrána sem fékst í 1. skrefi, þá fást nokkrar möppur og ein þeirra heitir
fonts.Opna möppuna
C:\Windows\Fonts.Velja
File -> Install new fontí valmyndinni.Velja skrárnar úr
fontsmöppunni sem fékkst í 2. skrefi.
Hreyfimyndir
[Til bráðabirgða:]
Flestar hreyfimyndir í safninu eru Java applet. Til að geta skoðað þær þarf að setja upp viðbót við alla vafra. Það ætti þó að gerast nokkuð sjálfkrafa í flestum tilfellum. Yfirleitt kvartar vafrinn yfir því að á síðunni sé efni sem hann getur ekki lesið og gefur í framhaldinu leiðbeiningar um hvernig bæta megi úr því.
- Java fyrir helstu stýrikerfi.