Skip to Content

Bókarverðlaun fyrir framúrskarandi árangur í stærðfræði á stúdentsprófi

Íslenska stærðfræðafélagið hefur frá árinu 1952 veitt bókarverðlaun fyrir framúrskarandi árangur í stærðfræði á stúdentsprófi.

Fyrirlestur um tilfallandi ræð horn Langleys - Sigurður Jens Albertsson

Tími: 
16. apríl 2024 - 16:30
Staðsetning: 
Háskóli Íslands, VR-II, stofa 157

Þriðjudaginn 16. apríl mun Sigurður Jens Albertsson flytja erindi um tilfallandi ræð horn Langleys. Fyrirlesturinn hefst klukkan 17.00 í VR-2, stofu 157 í HÍ. Eins og venja er mun vera heitt á könnunni frá 16.30.

Aðalfundur 2024

Tími: 
30. janúar 2024 - 15:30
Staðsetning: 
VR-2, stofu 155 í HÍ

Kæru félagar.

Aðalfundur Íslenska stærðfræðafélagsins var haldinn þriðjudaginn 30. janúar klukkan 16:00 í stofu 155 í VR-II við Hjarðarhaga.

Dagskrá fundarins var sem hér segir:

1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Skýrsla stjórnar flutt.
3. Samstarfsverkefni félagsins á erlendum vettvangi.
4. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til afgreiðslu.
5. Umsóknir um félagsaðild bornar upp.
6. Kosning stjórnarmanna.
7. Kosning skoðunarmanns reikninga.
8. Ákvörðun árgjalds.
9. Önnur mál.

Nýja stjórn skipa
Benedikt Steinar Magnússon, formaður

Jólafyrirlestur 2023

Tími: 
28. desember 2023 - 16:00
Staðsetning: 
Veröld - hús Vigdísar, fyrirlestrasalur 023

Jólafyrirlesturinn 2023 var minningarfyrirlestur um Sigurð Helgason sem lést 3. des­em­ber sama ár, haldinn af Ragnari Sigurðssyni, prófessor í stærðfræði við Háskóla Íslands. Boðið var upp á volgt kaffi og kalt súkkulaði fyrir erindið. Fyrirlesturinn var einnig aðgengilegur í streymi.

Andlátsfregn

Sigurður Helgason fyrrum prófessor við MIT, heiðursfélagi Íslenska stærðfræðafélagsins og heiðursdoktor við Háskóla Íslands
lést 3. desember. Hann var fæddur 30. september 1927 og var því 96 ára gamall.

Stjórn félagsins vottar aðstandendum Sigurðar sína samúð.

Um mikilvægi hnúta í netum

Tími: 
22. nóvember 2023 - 17:00
Staðsetning: 
VR-2, stofu 157 í HÍ

Miðvikudaginn 22. nóvember flutti María Óskarsdóttir erindi um mikilvægi hnúta í netum. Eins og venja er var heitt á könnunni frá 16.30.

Um mikilvægi hnúta í netum

Um mikilvægi hnúta í netum

Tími: 
22. nóvember 2023 - 17:00
Staðsetning: 
VR-2, stofu 157 í HÍ

Miðvikudaginn 22. nóvember flutti María Óskarsdóttir erindi um mikilvægi hnúta í netum. Eins og venja er var heitt á könnunni frá 16.30.

Um mikilvægi hnúta í netum

Um mikilvægi hnúta í netum

Tími: 
22. nóvember 2023 - 17:00
Staðsetning: 
VR-2, stofu 157 í HÍ

Miðvikudaginn 22. nóvember flutti María Óskarsdóttir erindi um mikilvægi hnúta í netum. Eins og venja er var heitt á könnunni frá 16.30.

Um mikilvægi hnúta í netum

Ráðstefnan Stærðfræði á Íslandi

Tími: 
14. október 2023 - 12:00
Staðsetning: 
Reykjaskóli í Hrútafirði

Kæra félagsfólk,

Helgina 14.-15. október verður haldin stærðfræðiráðstefna á vegum félagsins á Reykjum í Hrútafirði. Dagskráin hefst um hádegi á laugardegi og lýkur um kaffileytið á sunnudegi.

Laugardagurinn 14. október

11:00 - 12:00 Mæting og skráning. Munið að taka með rúmföt og handklæði.
12:00 Hádegisverður
13:10 Ráðstefnan sett
13:20 - 14:00 Ingunn Gunnarsdóttir - Samstem, samstarfsverkefni háskólanna og framhaldsskólanna um STEM.

Ráðstefnan Stærðfræði á Íslandi

Kæra félagsfólk,

Helgina 14.-15. október verður haldin stærðfræðiráðstefna á vegum félagsins á Reykjum í Hrútafirði. Dagskráin hefst um hádegi á laugardegi og lýkur um kaffileytið á sunnudegi. Nánari dagskrá verður send út flj́ótlega.

Þátttökugjald er 22.000 kr og innifalið í gjaldinu er einnig kaffi og með því í hléum, hádegismatur á laugardegi og sunnudegi, kvöldverður á laugardagskvöldi og morgunmatur á sunnudeginum. Við vekjum athygli á því að drykkir eru ekki seldir á staðnum en þátttakendum er heimilt að taka þá með.

Syndicate content