Á myndinni hér fyrir neðan má sjá ellefu ferningslaga spjöld sem hafa verið lögð á borð. Í hvaða röð voru fyrstu sjö spjöldin lögð á borðið?
Lítum á spjald F. Undir því liggur spjald E, sem aftur liggur ofan á spjaldi D. Spjöld C og G liggja bæði undir D. Ef spjald G lægi ofaná spjaldi C, þá myndi sjást í spjald G milli spjalda B og D. Svo er hinsvegar ekki og því liggur spjald C ofan á spjaldi G. Þau spjöld sem við höfum þegar nefnt voru því lögð niður í röðinni G, C, D, E, F. Nú er spjald A undir spjaldi B, spjald I undir spjaldi A og spjald J undir spjaldi I. Spjöldin H, K og F eru öll undir spjaldi J. Nú sést í hornið á spjaldi H milli spjalda J og B ofan á spjaldi F og því liggur spjald H ofan á spjaldi F og ljóst er að spjald K liggur ofan á spjaldi H. Sjáum þá að síðustu 7 spjöldin voru lögð á borðið í röðinni F, H, K, J, I, A, B.