Skip to Content

Í sléttu má setja upp þverstæða hnitaása eða karteskt hnitakerfi. Það eru þverstæðar talnalínur sem skerast í 0-punktum sínum. Skurðpunkturinn kallast þá upphafspunktur hnitakerfisins og er yfirleitt táknaður með O. Venja er að kalla aðra talnalínuna x-ás og hina y-ás. Upphafspunkturinn skiptir x-ás í tvær hálflínur; þá sem hefur punkta með frekar jákvæð hnit og kallast jákvæði x-ás, og aðra sem hefur punkta með frekar neikvæð hnit og kallast neikvæði x-ás. Sama á við um y-ás. Jákvæðu ásarnir tilgreina stefnu á hnitaásunum. Á mynd er venja að gefa jákvæðu stefnu hnitaásanna til kynna með ör og merkja ásana við örina með x eða y.

Hnitaásarnir skipta sléttunni í fjóra fjórðunga:

  • Fyrsti fjórðungur samanstendur af þeim punktum sléttunnar sem eru innaní rétta horninu sem hefur jákvæða x-ás og jákvæða y-ás fyrir arma sína,

  • Annar fjórðungur samanstendur af þeim punktum sléttunnar sem eru innaní rétta horninu sem hefur neikvæða x-ás og jákvæða y-ás fyrir arma sína,

  • Þriðji fjórðungur samanstendur af þeim punktum sléttunnar sem eru innaní rétta horninu sem hefur neikvæða x-ás og neikvæða y-ás fyrir arma sína,

  • Fjórði fjórðungur samanstendur af þeim punktum sléttunnar sem eru innaní rétta horninu sem hefur jákvæða x-ás og neikvæða y-ás fyrir arma sína,

Þegar sléttan er áttuð er venja að velja hnitaásana þannig að stefnuhornið sem hefur jákvæða x-ás sem fyrri arm og jákvæða y-ás fyrir seinni arm hafi jákvæða áttun. Þá fæst að þegar jákvæða x-ás er snúið rangsælis, þá fer hann fyrst í gegnum fyrsta fjórðung áður en hann fellur í jákvæða y-ás. Þegar honum er snúið áfram, þá fer hann næst í gegnum annan fjórðung, þá þriðja og loks fjórða fjórðung.

Með hjálp hnitaásanna má samsama punktum sléttunnar við tvenndir af rauntölum með eftirfarandi hætti:

  • Látum P vera punkt í sléttunni. Látum A vera fótpunkt þverilsins á x-ás í gegnum P. Hnit A á x-ásnum er rauntala a sem kallast x-hnit P. Hún er stundum táknuð x(P). Eins látum við B vera fótpunkt þverilsins á y-ás í gegnum P. Hnit B á y-ásnum er rauntala b sem kallast y-hnit P. Hún er stundum táknuð y(P). Talnatvenndin (a,b) kallast einu nafni kartesk hnit punktsins P, eða einfaldlega hnit P.

  • Látum (a,b) vera rauntalnatvennd. Látum A er punktinn á x-ás sem hefur hnit a og B vera punktinn á y-ás sem hefur hnit b. Þverillinn á x-ás í gegnum punktinn A sker þverilinn á y-ás í gegnum punktinn B. Látum P vera skurðpunktinn. Stundum er skurðpunkturinn einnig táknaður með P(a,b) til að gefa talnatvenndina til kynna.

Formerki hnita punkts gefa til kynna í hvaða fjórðungi hann er. Eftirfarandi tafla sýnir þetta:

x-hnity-hnitfjórðungur
jákvættjákvættfyrsti
neikvættjákvættannar
neikvættneikvættþriðji
jákvættneikvættfjórði

Dæmi:   Á myndinni hafa hnit nokkurra punkta verið merkt.