Skip to Content

Frádráttur falla er reikniaðgerð sem úthlutar föllunum $f: X \to \mathbb{R}$ og $g: X \to \mathbb{R}$ fallinu $(f-g): X \to \mathbb{R}$ með forskriftina \[ (f-g)(x) = f(x) - g(x). \] Fallið $(f-g)$ kallast mismunur fallanna $f$ og $g$.

Dæmi:  

  • Látum $f, g: \mathbb{R} \to \mathbb{R}$ vera föll með forskriftirnar $f(x) = 4x+3$ og $g(x) = x^2+1$. Þá er mismunur fallanna $f$ og $g$ fallið $(f-g): \mathbb{R} \to \mathbb{R}$ sem hefur forskriftina \[ (f-g)(x) = f(x) - g(x) = (4x+3) - (x^2+1) = -x^2 + 4x + 2. \]