Ef hornpunktar marghyrnings liggja allir á gefnum hring, þá kallast hringurinn umritaður hringur marghyrningsins.
Almennt hafa marghyrningar engan umritaðan hring. Sérhver þríhyrningur hefur hinsvegar umritaðan hring og er miðja hans skurðpunktur miðþverla hliða þríhyrningsins.
Dæmi: Myndin sýnir ummritaðan sexhyrning.